Fotbolti.net
07.07.26 - 10:06
Kári Snorrason

Túfa rekinn frá Varnamö (Staðfest)

Tók við liðinu í vetur eftir að hafa verið rekinn frá Val.

Tók við liðinu í vetur eftir að hafa verið rekinn frá Val.

Canon

Mynd: Varnamo

Srdjan Tufegdzic, Túfa, hefur verið látinn taka poka sinn sem stjóri sænska B-deildar liðsins Varnamö.

Varnamö féll úr Allsvenskan á síðasta tímabili en liðið hefur tapað níu af síðustu tíu leikjum.

Síðasti sigurleikur Varnamö kom í apríl og er liðið í næst neðsta sæti deildarinnar, sex stigum frá öruggu sæti.
Túfa tók við stjórnartaumunum á félaginu í vetur eftir að hann var rekinn frá Val. Hann hefur áður stýrt Grindavík, KA og Val hér á landi.

Logi Hrafn Róbertsson er leikmaður Varnamö og hefur hann verið í stóru hlutverki hjá liðinu á tímabilinu.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.