Breyttar forsendur og Ari Leifs fer líklega ekki í Val

Hvað gerir Ari?

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hemmi var þjálfari Fylkis þegar Ari var að banka á dyrnar hjá meistaraflokki félagsins.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hvað gerir Ari?

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fótbolti.net sagði frá því fyrir rúmum sex vikum síðan að varnarmaðurinn Ari Leifsson myndi ganga í raðir Vals í sumarglugganum. Þá benti allt til þess að Ari, sem var með lausan samning hjá Kolding í Danmörku, færi í Val, en nú er staðan breytt.

TENGT EFNI
Ari verður leikmaður Vals í júlí
Fylkismaðurinn og fyrrum liðsfélagi Ara, Albert Brynjar Ingason, sagði frá því í Dr. Football þætti dagsins að það væri ekki öruggt að Ari færi í Val og samkvæmt heimildum Fótbolta.net er ólíklegt að Ari endi á Hlíðarenda.
Það eru breyttar forsendur eftir að Hermann Hreiðarsson var látinn fara sem þjálfari Vals fyrir viku síðan. Hemmi var þjálfari Fylkis þegar Ari var að banka á dyrnar hjá meistaraflokki félagsins. Chris Brazell tók við sem aðalþjálfari Vals út tímabilið og Halldór Árnason tekur svo við liðinu að tímabilinu loknu.
„Mikið talað um það sé frágengið að Ari Leifsson fari í Val, það er ekki þannig. Breytt staða eftir að Hemmi var látinn fara, Ari er farinn að tala við önnur félög, ekki bara Val. Það er galopið, ekkert útilokað að hann fari í Val," sagði Albert í þættinum en hann spilaði með Ara í Fylki 2015-2018.
Fyrr á þessu ári var Ari (1998) orðaður við Val, KA, Breiðablik og Víking. Hann lék síðast á Íslandi tímabilið 2019 með uppeldisfélaginu Fylki. Sem atvinnumaður hefur hann leikið með Strömsgodset í Noregi og Kolding í Noregi. Hann á að baki fjóra A-landsleiki og 20 leiki fyrir U21 landsliðið.