Fotbolti.net
07.09.18 - 20:55
Ester Ósk Árnadóttir

Lárus Orri: Það þarf ekki að bæta við nema einum leik

Auglýsing
Lárus Orri: Það þarf ekki að bæta við nema einum leik
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<i style=\"border: 0px; margin: 0px; padding: 0px; font-size: 14px; color: rgb(52, 52, 52); font-family: -apple-system, system-ui, &quot;Segoe UI&quot;, Roboto, Oxygen-Sans, Ubuntu, Cantarell, &quot;Helvetica Neue&quot;, Arial, sans-serif;\">&bdquo;</i><em>&THORN;etta var &ouml;rugglega ekki skemmtilegur leikur a&eth; horfa &aacute;. &THORN;etta var meira og minna hornspyrnur og l&ouml;ng innk&ouml;st. Vi&eth; reyndum a&eth; spila og vi&eth; n&aacute;&eth;um upp &aacute;g&aelig;tis spili &aacute; k&ouml;flum en svo held &eacute;g a&eth; &thorn;a&eth; hafi skini&eth; &iacute; gegn a&eth; anna&eth; li&eth;i&eth; var a&eth; berjast fyrir l&iacute;fi s&iacute;nu en hitt li&eth;i&eth; ekki a&eth; spila upp &aacute; neitt</em>,<i style=\"border: 0px; margin: 0px; padding: 0px; font-size: 14px; color: rgb(52, 52, 52); font-family: -apple-system, system-ui, &quot;Segoe UI&quot;, Roboto, Oxygen-Sans, Ubuntu, Cantarell, &quot;Helvetica Neue&quot;, Arial, sans-serif;\">&quot;</i><span style=\"color: rgb(52, 52, 52); font-family: -apple-system, system-ui, &quot;Segoe UI&quot;, Roboto, Oxygen-Sans, Ubuntu, Cantarell, &quot;Helvetica Neue&quot;, Arial, sans-serif; font-size: 14px;\">&nbsp;</span>sag&eth;i L&aacute;rus Orri &thorn;j&aacute;lfari &THORN;&oacute;r eftir 2-1 sigur &aacute; Selfoss &aacute; &THORN;&oacute;rsvellinum &iacute; kv&ouml;ld.&nbsp;
Þór komst yfir á 35 mínútu en Selfoss var ekki lengi að jafna. 



Mér fannst þeir gera ágætlega, ná góðum krossi inn og hann er náttúrulega mjög hættulegur í teignum senterinn þeirra ef krossarnir koma. Ágætis mark af þeirra hálfu frekar en léleg varnarvinna hjá okkur."  



Jóhann Helgi kom inn á 60 mínútu. Hann spilaði mjög vel fyrir Þór og skoraði sigurmarkið. 



Jói skorar alltaf mörk er það ekki? En jú það er mjög sterkt að geta sett hann alltaf inn á." 



Þór er í fjórða sæti deildarinnar með 37 stig en hafa að engu að keppa í síðustu tveimur leikjunum.



Það er engu að keppa nema í raun stoltið og ná þessum síðustu 6 stigum." 



Lárus Orri talaði einnig um playoffs eins og hann hefur gert áður. Hann telur að það geti hleypt hasar í deildina.



Ég minnist á það í síðasta viðtali og ég ætla að minnast á það aftur. Það er ekki bara fyrir okkur heldur fyrir deildina, áhorfendur og fyrir alla þá ætti að skoða það að vera með playoffs í þessum deildum og það er bara til að halda lífi í deildunum. Þetta er að ske ár eftir ár að síðustu þrjár til fjórar umferðirnar eru sum lið að spila upp á ekki neitt. Það er alveg skelfilega leiðinlegt." 



Mörg lönd í kringum Ísland notast við playoffs.



Þetta er í öllum löndum í kringum okkur, þetta er í Noregi og Englandi. Þetta er útum allt og af hverju ekki hér, kannski er það af því að veðrið er ekki nógu gott til að bæta við auka leik. Það þarf ekki að bæta við nema einum leik og ef veður spilar inn í þá er bara að spila leikinn inni. Endilega að skoða það að bæta við meiri hasar í deildina."  



Viðtalið í heild sinni má sjá hér að ofan. 
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.