Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 07. september 2020 14:09
Hafliði Breiðfjörð
Myndir: Aron Einar tók húfuna af Andra Fannari í miðjum leik
Icelandair
Húfan fýkur af Andra Fannari. Fleiri myndir má svo sjá neðst í fréttinni.
Húfan fýkur af Andra Fannari. Fleiri myndir má svo sjá neðst í fréttinni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Við sögðum frá því í morgun að Andri Fannar Baldursson, nýjasti landsliðsmaður Íslands, hafi verið boltastrákur á leik Íslands og Kazakhstan árið 2015, leiknum mikilvæga þar sem Ísland tryggði sér sæti á EM 2016 í Frakklandi.

Andri Fannar sást þar á mynd þar sem hann er að þurrka boltann fyrir Aron Einar Gunnarsson fyrirliða íslenska liðsins en við kíktum á myndabankann okkar og fundum fleiri myndir af þessu atviki. Þá sáum að sagan á milli þeirra var aðeins lengri í þessu atviki.

Aron Einar var greinilega að fíflast í Andra Fannari þegar hann þurrkaði fyrir hann boltann og endaði svo á að rífa af honum húfuna og henda henni á hlaupabrautina. Í bakgrunni má sjá Tólfuna skella uppúr við þetta atvik.

Myndirnar má sjá hér að neðan en Andri Fannar er farinn til Belgíu með íslenska liðinu sem mætir Belgum í Þjóðadeildinni annað kvöld. Aron Einar fékk ekki leyfi frá félagi sínu í Katar til að vera með í verkefninu.
Athugasemdir
banner
banner
banner