Fotbolti.net
06.09.26 - 23:20
Ívan Guðjón Baldursson

Klaksvíkingar ráku þjálfarann eftir tap í bikarúrslitum

Klaksvíkingar ráku þjálfarann eftir tap í bikarúrslitum
Canon

Mynd: EPA

Færeyska stórveldið KÍ er búið að reka sænska þjálfarann Magnus Powell eftir tap í úrslitaleik færeyska bikarsins.
Klaksvík tapaði úrslitaleiknum gegn Víkingur Göta á dögunum, aðeins rétt rúmri viku eftir að hafa verið slegnir úr leik af Riga FC í forkeppni Sambandsdeildarinnar.

KÍ gerði frábæra hluti undir stjórn Powell. Liðið var taplaust í meira en ár í færeysku deildinni, sýndi flottar frammistöður í Evrópu og vann bæði deild og bikar í fyrra. Undanfarna mánuði hafa úrslitin þó ekki verið jafn góð og eftir síðustu tapleiki ákvað stjórn Klaksvíkur að reka þjálfarann.

KÍ er í öðru sæti færeysku deildarinnar, með 41 stig eftir 21 umferð - þremur stigum á eftir toppliði NSÍ Runavíkur sem leikur undir stjórn Sigurðs Ragnars Eyjólfssonar.

Færeyingurinn Fróði Benjaminsen, sem átti að taka við stjórn á KÍ á næsta ári, er tekinn við af Magnus Powell.
Klaksvíkingar ráku þjálfarann eftir tap í bikarúrslitum
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.