07.10.26 - 23:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Kane ætlar að gera sitt besta til að bæta met Ronaldo

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Harry Kane hefur verið stórkostlegur í ensku landsliðstreyjunni en hann spilaði 125. landsleikinn sinn í gær og jafnaði leikjamet markvarðarins Peter Shilton.
Hann hefur skorað 91 mark fyrir landsliðið en Cristiano Ronaldo er markahæsti landsliðsmaður sögunnar með 146 mörk fyrir Portúgal.
„Við sjáum til hversu nálægt ég kemst. Það er langt í það eins og er. Hver veit? Ég er í góðu formi, einhverjir hafa spilað til nánast fertugt," sagði Kane.
„Svo framarlega sem ég tel mig geta hjálpað liðinu verð ég hér og þegar ég get það ekki fer ég. Förum í hundrað fyrst og tökum svo stöðuna."