07.10.26 - 11:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Liðin sjö sem íslensku strákarnir geta mætt - Opinn dráttur

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Á föstudag verður dregið í umspilið fyrir EM 2027 hjá U21 landsliðum og eftir sigur gegn Færeyjum í gær tryggði Ísland sér sæti í umspilinu.
Ísland endaði í 2. sæti í sínum undanriðli, á eftir Frakklandi, og ásamt því að þurfa að vinna Færeyjar þurftu strákarnir okkar að treysta á að Frakkland myndi sigra Sviss og það gekk eftir.

Lestu um leikinn: Færeyjar U21 0 - 2 Ísland U21
Níu riðlar voru í undankeppninni en stigahæsta liðið í 2. sæti fer beint í lokakeppnina ásamt liðunum sem enduðu í toppsætunum.
Drátturinn í Nyon á föstudag er opinn, engin styrkleikaröðun, og Ísland getur því mætt hvaða liði sem er af eftirfarandi liðum:
Tékkland, Danmörk, Finnland, Grikkland, Holland, Írland og Tyrkland.
Umspilið verður spilað í næsta mánuði, spilað verður heima og að heiman.
Alls 16 lið taka þátt í lokamótinu sem fram fer næsta sumar í Albaníu og Serbíu.
Eftirfarandi þjóðir eru komnar með sæti á mótinu
Albanía (heldur mótið), Belgía, Króatía, England (ríkjandi meistari), Frakkland, Þýskaland, Ítalía, Noregur, Pólland, Portúgal, Serbía (heldur mótið) og Spánn.

Landslið karla - U21 - Undankeppni EM
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Frakkland | 10 | +25 | 26 |
| 2 | Iceland | 10 | +11 | 18 |
| 3 | Sviss | 10 | +1 | 17 |
| 4 | Færeyjar | 10 | -9 | 12 |
| 5 | Lúxemborg | 10 | -9 | 10 |
| 6 | Eistland | 10 | -19 | 2 |