Fotbolti.net
07.10.26 - 14:00
Innkastið

Besti leikmaður Íslands í glugganum kominn með byrjunarliðssætið

Hákon Rafn Valdimarsson var frábær í glugganum.

Hákon Rafn Valdimarsson var frábær í glugganum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Markvörðurinn Hákon Rafn Valdimarsson var besti leikmaður Íslands í liðnum landsleikjaglugga. Þetta er mat sérfræðinga Fótbolta.net og einkunnagjöfin endurspeglar það.

Hákon fékk aðeins eitt mark á sig í glugganum og er með 8 í meðaleinkunn í gegnum leikina fjóra.
Hákon Rafn: Það verður bara að koma í ljós hvernig þjálfarinn velur í liðið
TENGT EFNI

Hákon Rafn: Það verður bara að koma í ljós hvernig þjálfarinn velur í liðið

Bestu leikmenn Íslands í glugganum (meðaleinkunn)
Hákon Rafn 8
Orri Steinn 7
Hákon Arnar 6,75
Ísak Bergmann 6,75


Hákon fékk tækifærið í ljósi þess að Elías Rafn Ólafsson, sem hefur verið aðalmarkvörður, meiddist. Hákon greip tækifærið opnum örmum.

Hákon ræddi við Fótbolta.net eftir markalausa jafnteflið gegn Eistlandi í gær. Aðspurður hvort hann vonist eftir því að halda sínu sæti í liðinu þegar Elías snýr aftur sagði hann:

„Já, já, auðvitað vil ég spila og það verður bara að koma í ljós hvernig þjálfarinn velur í liðið."

Í hlaðvarpsþættinum Innkastið var leikurinn gerður upp og voru allir þrír í þættinum sammála um að Hákon væri kominn með aðalmarkvarðarstöðuna í ljósi frammistöðunnar en samkeppnin við Elías er gríðarlega hörð.
Besti leikmaður Íslands í glugganum kominn með byrjunarliðssætið
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Innkastið - Ósáttir en ósigraðir

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.