Fotbolti.net
07.10.26 - 19:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Rice að skrifa undir nýjan samning

Rice að skrifa undir nýjan samning
Canon

Mynd: EPA

Delcan Rice er nálægt því að skrifa undir nýjan langtíma samning við Arsenal. BBC greinir frá þessu.
Rice hefur verið lykilmaður í liðinu síðan hann kom frá West Ham fyrir 105 milljónir punda árið 2023.

Núgildandi samningur rennur út næsta sumar en BBC greindi frá því í mars að viðræður um nýjan samning væru hafnar.

Þessi 27 ára gamli miðjumaður hefur spilað 165 leiki fyrir Arsenal og verið lykilmaður í enska landsliðinu. Thomas Tuchel sagði á dögunum að hann væri einn besti miðjumaður Evrópu.

Þessar fréttir koma í kjölfarið á því að Mikel Arteta, stjóri Arsenal, skrifaði undir nýjan fjögurra ára samnng.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.