Fotbolti.net
07.10.26 - 19:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Mættur aftur til Skotlands eftir vonbrigðadvöl hjá Freysa

Mættur aftur til Skotlands eftir vonbrigðadvöl hjá Freysa
Canon

Mynd: EPA

Rabbi Matondo hefur skrifað undir samning við Hibernian sem gildir út tímabilið. Það er ákvæði í samningnum um möguleika á framlengingu um ár til viðbótar.

Þessi 26 ára gamli Walesverji yfirgaf Rangers í mars eftir að hafa spilað 70 leiki á fjórum árum. Hann gekk til liðs við Brann, sem var þá undir stjórn Freys Alexanderssonar.
Hann kom hins vegar aðeins við sögu í þremur leikjum og samningi hans var rift í lok ágúst.

„Það var synd að ég gat ekki sýnt stuðningsmönnnum hvað ég gæti á vellinum. Þetta er sorglegt en ég óska liðinu alls hins besta. Ég kynntist frábærum liðsfélögum og mun halda áfram að styðja þá," sagð Matondo eftir að samningi hans við Brann var rift.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.