Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United, er búinn að velja byrjunarlið sitt fyrir leikinn gegn Partizan í Evrópudeildinni í kvöld.
Leikurinn fer fram á Old Trafford og með sigri tryggir United sér farseðilinn í 32-liða úrslitunum. Leikurinn hefst 20:00.
Leikurinn fer fram á Old Trafford og með sigri tryggir United sér farseðilinn í 32-liða úrslitunum. Leikurinn hefst 20:00.
Hinn 18 ára gamli Mason Greenwood fær tækifæri. Hann byrjar frammi með Marcus Rashford og Anthony Martial.
Alls gerir Solskjær fjórar breytingar frá tapinu gegn Bournemouth um síðustu helgi. Romero, Rojo, Mata og Greenwood koma inn fyrir De Gea, Lindelöf, Pereira og Daniel James.
Byrjunarlið Man Utd: Romero; Wan-Bissaka, Maguire, Rojo, Young; Fred, McTominay, Mata; Rashford, Greenwood, Martial.
(Varamenn: Grant, Jones, Lingard, Pereira, James, Garner, Williams)
Athugasemdir