Fotbolti.net
27.11.26 - 11:06
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Arbeloa lokar á Man Utd - „Ekki séns að hann geti farið í janúar"

Arbeloa lokar á Man Utd - „Ekki séns að hann geti farið í janúar"
Canon

Mynd: EPA

Manchester United hefur verið orðað við Calvin Bassey, miðvörð Fulham, undanfarnar vikur. Alvaro Arbeloa, stjóri Fulham, sagði hins vegar í dag að það væru engar líkur á að Bassey fengi að fara í janúar.

Arbeloa staðfestir að félagið sé í viðræðum við nígeríska varnarmanninn um nýjan samning. Bassey er ekki til sölu.
„Ég er svo ánægður með Calvin og augljóslega er hann ekki til sölu," sagði Arbeloa í dag.

„Ekki séns að hann geti farið frá félaginu í janúar og ég held að hann sé ánægður hér."

„Hann er einn af fyrirliðum okkar, hann er einn af okkar leiðtogum. Það er eðlilegt að svona mörg félög hafa áhuga á honum, það er gott fyrir hann og gott fyrir okkur. Það þýðir að hann er að standa sig mjög vel."

„Við erum að vinna í nýjum samningi og ég vona að hann geti skrifað undir eins fljótt og hægt er,"
segir Arbeloa.

Bassey er 26 ára og verður samningslaus næsta sumar, ef samkomulag um nýjan samning næst ekki er félagið með möguleikann á eins árs framlengingu. Bassey kom til Fulham frá Ajax sumarið 2022.

Man Utd hefur verið orðað við miðverði að undanförnu og er Jarrad Branthwaite hjá Everton annað nafn á óskalistanum.
Arbeloa lokar á Man Utd - „Ekki séns að hann geti farið í janúar"
Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal11+1028
2Brighton11+1722
3Man City11+822
4Liverpool11+821
5Bournemouth11+418
6Brentford11+917
7Leeds11+517
8Chelsea11016
9Everton11-216
10Tottenham11+115
11Hull City11+214
12Aston Villa11-314
13Newcastle11-313
14Coventry11-812
15Fulham11-211
16Ipswich Town11-711
17Nott. Forest11-69
18Sunderland11-99
19Man Utd11-98
20Crystal Palace11-157
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.