Fotbolti.net
07.12.19 - 12:00
Ívan Guðjón Baldursson

Guardiola: Samt erum við ellefu stigum eftir þeim

Guardiola: Samt erum við ellefu stigum eftir þeim
Canon

Mynd: Getty Images

Josep Guardiola og lærisveinar hans í Manchester City vildu vinna ensku úrvalsdeildina þriðja árið í röð en sá draumur virðist ólíklegri með hverri vikunni.
Man City er í þriðja sæti sem stendur, ellefu stigum eftir toppliði Liverpool. Fimmtán umferðir eru búnar af leiktíðinni.

Guardiola segist ekki skilja hvers vegna stigamunurinn á liðunum sé svo mikill en Liverpool hefur verið að stela stigum á lokamínútum leikja í allt haust.

„Ég væri til í að vita ástæðuna fyrir þessum mikla stigamun á okkur og Liverpool," sagði Guardiola.

„Ein ástæðan eru gæðin sem andstæðingar okkar búa yfir, þeir hafa aðeins tapað einum leik af tæplega 60, það er ótrúlegt.

„Við erum langbesta liðið þegar það kemur að tölfræði yfir sköpuð færi og besta liðið í tölfræði yfir færi fengin á sig. Þar erum við mikið betri heldur en andstæðingar okkar.

„Samt erum við ellefu stigum eftir þeim."


Man City tekur á móti Manchester United í nágrannaslag í dag.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.