Bayer 2 - 1 Schalke 04
1-0 Lucas Alario ('15 )
2-0 Lucas Alario ('81 )
2-1 Benito Raman ('82 )
1-0 Lucas Alario ('15 )
2-0 Lucas Alario ('81 )
2-1 Benito Raman ('82 )
Bayer Leverkusen hafði betur gegn Schalke þegar liðin áttust við í lokaleik dagsins í þýsku úrvalsdeildinni.
Argentínumaðurinn Lucas Alario átti góðan dag fyrir Leverkusen. Hann kom liðinu yfir á 15. mínútu og skoraði svo sitt annað mark á 81. mínútu.
Benito Raman minnkaði muninn fyrir Schalke nokkrum sekúndum eftir síðara mark Alario, en lengra komst Schalke ekki; sanngjarn sigur Leverkusen niðurstaðan.
Bæði lið eru með 25 stig, Schalke í fjórða sæti og Leverkusen í sjötta sætinu.
Önnur úrslit:
Þýskaland: Toppliðið hafði betur gegn Bayern
Athugasemdir