Rodri, Leon Goretzka, Dusan Vlahovic, Sandro Tonali og Marcus Rashford eru meðal þeirra sem koma við sögu
   sun 08. febrúar 2026 19:58
Brynjar Ingi Erluson
Slot: Guehi rændi Salah upplögðu marktækifæri
Arne Slot
Arne Slot
Mynd: EPA
Hollenski stjórinn Arne Slot var ánægður með framlagið en ósáttur við ýmsar ákvarðanir í 2-1 tapinu gegn Manchester City á Anfield í kvöld.

Hann segir að það hafi verið erfitt að eiga við Man City í fyrri hálfleiknum en að það hafi gengið betur í þeim síðari.

Framlagið var til staðar en úrslitin ekki alveg eftir því.

„Annar frábær leikur Liverpool og Man City sem við höfum svo oft fengið að sjá yfir árin, en niðurstaðan var mikil vonbrigði.“

„Þeim leið betur með boltann en það skilaði ekki mörgum dauðafærum. Það var síðan andstæðan í síðari hálfleiknum, en síðan þegar þeir komust nálægt teignum hjá okkur kom mark sem var vonbrigði. Við fengum færi þegar Curtis Jones var með boltann og Salah tók hlaup úr djúpinu en því miður náði Guehi að taka á móti því og síðan sáum við hvað gerðist eftir það.“

„Maður heldur alltaf í vonina um að halda orkunni gangandi en því miður gera þeir stundum mistök. Við áttum góðan og áhrifamikinn síðari hálfleik, en úrslitin voru því miður ekki jákvæð.“


Í uppbótartíma var fallegt mark tekið af Rayan Cherki sem rúllaði boltanum frá miðjunni og í netið. Það var hins vegar tekið af þar sem Dominik Szoboszlai braut á Erling Braut Haaland áður en boltinn fór í netið. Szoboszlai fékk því rautt og markið tekið af en Slot vildi ræða aðra ákvörðun í leiknum.

„Við getum talað um ákvarðanir leiksins. Ég væri til í að tala um það þegar Mo var kominn í gegn og Guehi hélt í treyjuna hans. Allir sem hafa mætt á þennan leikvang síðustu átta árin vita það að þegar Mo er í þessari stöðu þá er það mark. Þannig hann rænir hann upplögðu marktækifæri þarna,“ sagði Slot.
Athugasemdir
banner
banner