Rodri, Leon Goretzka, Dusan Vlahovic, Sandro Tonali og Marcus Rashford eru meðal þeirra sem koma við sögu
   sun 08. febrúar 2026 19:13
Brynjar Ingi Erluson
„Vissum að titilbaráttunni væri lokið hefðum við tapað þessum leik“
Bernardo Silva og Pep Guardiola eftir leikinn
Bernardo Silva og Pep Guardiola eftir leikinn
Mynd: EPA
Portúgalinn Bernardo Silva var í skýjunum eftir magnaðan 2-1 karakterssigur Manchster City á Liverpool á Anfield í kvöld. Titilbaráttan er enn á lífi þökk sé endurkomu City-manna.

Liverpool komst yfir með stórkostlegu aukaspyrnumarki Dominik Szoboszlai á 74. mínútu en Man City gafst ekki upp. Bernardo Silva jafnaði og þá skoraði Erling Braut Haaland úr vítaspyrnu snemma í uppbótartíma.

Man City hafði ekki unnið á Anfield fyrir framan áhorfendur síðan 2003 og því ansi merkilegur sigur hjá þeim ljósbláu sem eru enn í titilbaráttunni, aðeins sex stigum frá Arsenal.

„Við vorum að koma á erfiðasta staðinn í ensku úrvalsdeildinni og vissum af fjarlægðinni milli okkar og Arsenal, en við þurftum að reyna að ná í annað mark. Ég var ótrúlega ánægður þegar ég skoraði, en við þurftum annað og Erling náði í það.“

„Þessi stig telja eins og öll önnur. Byrjunin á árinu hefur verið svolítið svekkjandi því við höfum ekki verið að gera nóg. Við gætum verið nær Arsenal, en svona persónulega þá verður þú að ímynda þér hversu erfitt það er að vinna á þessum velli. Ég er ánægður.“

„Mér fannst eins og allir í liðinu vissu það að ef við töpuðum leiknum þá væri titilbaráttan líklega úr sögunni. Okkur fannst við þurfa að vinna. Vonin er til staðar og við munum berjast til enda. Við þurfum að halda áfram leggja okkur fram, eitthvað sem við höfum ekki verið að gera nýlega,“
sagði Silva.
Athugasemdir
banner
banner
banner