Wilson óvænt að semja aftur - Man Utd bætir öðrum miðjumanni Forest á óskalistann - City að klára kaup - Real fylgdist með Tonali
   sun 08. mars 2026 20:08
Ívan Guðjón Baldursson
Blóðug átök eftir sigur Celtic gegn Rangers
Mynd: EPA
Það féll allt í óreiðu eftir sigur Celtic gegn Rangers í 8-liða úrslitum skoska bikarsins í dag.

Leiknum lauk með markalausu jafntefli og hafði Celtic betur eftir vítaspyrnukeppni sem leiddi til þess að stuðningsmenn liðsins náðu að ryðja sér leið inn á völlinn til að fagna.

Skömmu síðar fylgdu reiðir stuðningsmenn Rangers og brutust út átök. Vallarstarfsmenn áttu í fullu fangi með að halda ofbeldinu í skefjum og þurfti lögregla að skerast í leikinn. Þá mátti sjá blæða úr nokkrum einstaklingum.

Leikmenn og starfsteymi forðuðu sér hið snarasta en ekki tókst öllum að komast í skjól í tæka tíð. Enginn leikmaður eða starfsmaður liðanna er þó talinn hafa slasast í átökunum, einungis áhorfendur og vallarstarfsmenn.

Lögregluþjónar skárust fljótt í leikinn og voru ekki lengi að aðskilja stuðningsmannahópana, sem snéru aftur til áhorfendapallanna.

Þetta var í fyrsta sinn síðan 2018 sem stuðningsmenn Celtic fá að fullmanna stúkuna sína fyrir aftan annað markið, þar sem hörðustu stuðningsmenn félagsins eru þekktir fyrir að standa saman. Hún rýmir um 7500 manns en á undanförnum árum hafa innan við í mesta lagi 1000 áhorfendur mátt kaupa sér miða í hana.

Góðar líkur eru á því að Broomloan stúkan verði áfram lokuð eða takmörkuð á komandi árum eftir hegðun stuðningsmanna í dag.

Skoska fótboltasambandið hefur fordæmt hegðun stuðningsmanna og segir að atvikið verði rannsakað.


Full Time Chaos as Celtic knock out Rangers in the Scottish Cup
by
u/No_Emu8347 in
soccer



Blood on ?van?ara's (Celtic) shirt after fan attack on the pitch at the match v Rangers
by
u/Mulderre91 in
soccer

Athugasemdir
banner