Óvissa með Rashford - Gordon orðaður við Bayern og Arsenal - Mac Allister og Gomez orðaðir við brottför
   sun 08. mars 2026 19:53
Ívan Guðjón Baldursson
Farke: Hin liðin töpuðu eftir að hafa gert breytingar
Mynd: EPA
Daniel Farke þjálfari Leeds var ánægður eftir frábæran 3-0 sigur gegn Norwich í enska bikarnum í dag.

Farke gerði níu breytingar á byrjunarliðinu til að hvíla menn fyrir komandi átök í fallbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar og var mjög ánægður með útkomuna.

„Það nægir bara að horfa á hvað gerðist í öðrum leikjum dagsins til að sjá hvað þessi keppni er erfið. Tvö úrvalsdeildarfélög féllu úr leik gegn liðum úr neðri deildum eftir að hafa gert álíka margar breytingar á byrjunarliðunum sínum og við," sagði Farke.

„Þetta eru mikilvægar mínútur fyrir suma leikmenn og mikilvæg hvíld fyrir aðra. Við spiluðum frábærlega þrátt fyrir að hafa gert níu breytingar, við verðskulduðum að leiða 2-0 í hálfleik en við hefðum mátt vera betri í síðari hálfleik. Yfir heildina litið þá gáfum við ekki mörg færi á okkur og verðskulduðum sigurinn.

„Þetta er mikilvægur sigur fyrir okkur sem liðsheild og núna eru bara átta lið eftir í bikarnum. Við erum að gera góða hluti, það eru mikilvægar vikur framundan."


Farke telur þó ekki raunhæft að hugsa um að vinna bikarinn, en sigurvegari keppninnar fær sæti í Evrópudeildinni á næstu leiktíð auk þess að keppa um Samfélagsskjöldinn í ágúst.

„Ef við höldum áfram að spila svona vel í bikarnum þá getum við látið okkur dreyma, en það er ekki raunhæft að ætla að vinna keppnina. Einbeitingin verður að vera á úrvalsdeildinni en það er góð tilfinning að vita að við gætum skrifað nýjan kafla í sögu Leeds með góðum árangri í bikarnum."

Farke var í hliðarlínubanni í dag og horfði því á leikinn frá áhorfendapöllunum.

„Ég fékk betra sjónarhorn af mörkunum en ég hefði auðvitað frekar viljað vera með strákunum á hliðarlínunni."
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 32 21 7 4 62 24 +38 70
2 Man City 31 19 7 5 63 28 +35 64
3 Man Utd 32 15 10 7 57 45 +12 55
4 Aston Villa 32 16 7 9 43 38 +5 55
5 Liverpool 32 15 7 10 52 42 +10 52
6 Chelsea 32 13 9 10 53 41 +12 48
7 Brentford 32 13 8 11 48 44 +4 47
8 Everton 32 13 8 11 39 37 +2 47
9 Brighton 32 12 10 10 43 37 +6 46
10 Sunderland 32 12 10 10 33 36 -3 46
11 Bournemouth 32 10 15 7 48 49 -1 45
12 Fulham 32 13 5 14 43 46 -3 44
13 Crystal Palace 31 11 9 11 35 36 -1 42
14 Newcastle 32 12 6 14 45 47 -2 42
15 Leeds 32 8 12 12 39 49 -10 36
16 Nott. Forest 32 8 9 15 32 44 -12 33
17 West Ham 32 8 8 16 40 57 -17 32
18 Tottenham 32 7 9 16 40 51 -11 30
19 Burnley 32 4 8 20 33 63 -30 20
20 Wolves 32 3 8 21 24 58 -34 17
Slapp
banner
banner
banner