Wilson óvænt að semja aftur - Man Utd bætir öðrum miðjumanni Forest á óskalistann - City að klára kaup - Real fylgdist með Tonali
   sun 08. mars 2026 17:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Kolbeinn á skotskónum í bikarsigri
Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Svansson
Kolbeinn Þórðarson var á skotskónum þegar Gautaborg lagði Degerfors í sænska bikarnum í dag.

Gautaborg var með 3-0 forystu í hálfleik en Kolbeinn skoraði annað mark liðsins. Lokatölur urðu 3-1.

Sigurinn þýðir að Gautaborg vann riðilinn sinn og er komið áfram í 8-liða úrslit keppninnar.

Hjörtur Hermannsson var í byrjunarliði Volos sem gerði hádramatískt 1-1 jafntefli gegn OFI Crete í grísku deildinni. Volos var 0-1 undir þangað til á sjöundu mínútu í uppbótatíma þegar Juanpi skoraði úr vítaspyrnu og bjargaði stigi fyrir liðið.

Volos er í 9. sæti með 28 stig eftir 24 umferðir.
Athugasemdir
banner