Sunderland heimsótti Port Vale, sem leikur í League One deildinni, og tapaði óvænt í 16-liða úrslitum enska bikarsins í dag.
Régis Le Bris þjálfari óskaði Port Vale til hamingju með verðskuldaðan sigur eftir lokaflautið, en það eru tvær heilar deildir sem skilja að á milli liðanna í enska boltanum. Port Vale er í neðsta sæti í League One deildinni á meðan Sunderland freistar þess að reyna við ólíklegt evrópusæti í úrvalsdeildinni.
Ben Waine skoraði eina mark leiksins með skalla á 28. mínútu og fundu gestirnir frá Sunderland ekki nægilega góðar lausnir í sóknarleiknum. Lærlingar Le Bris héldu boltanum langstærsta hluta leiksins en lentu í vandræðum þegar kom að því að skapa og nýta færi.
„Í fyrsta lagi vil ég óska andstæðingunum okkar til hamingju, þeir léku frábærlega í dag. Þeir voru hungraðir og spiluðu af mikilli þolinmæði og ákefð. Við vorum því miður ekki á sama stað," sagði Le Bris eftir tapið.
„Þetta var leikur sem snérist mikið um að vinna einvígin sín og seinni boltana og við vorum ekki nægilega góðir þar. Svona gerist í fótbolta, við verðum að samþykkja þetta þó það sé erfitt. Þetta er sorglegt fyrir okkur og stuðningsmennina sem ferðuðust alla þessa leið til að styðja við bakið á okkur. Þetta er mjög erfið keppni, það getur hvað sem er gerst í einum 90 mínútna fótboltaleik og þá er maður úr leik."
Le Bris hvíldi nokkra lykilmenn fyrir komandi átök í ensku úrvalsdeildinni, þar sem fyrirliðinn Granit Xhaka fékk til að mynda aðeins að spila nokkrar mínútur undir lokin.
„Við verðum að passa upp á leikmennina okkar, það væri óheppilegt að missa lykilmenn í meiðsli á þessum tímapunkti. Við erum einbeittir að ensku úrvalsdeildinni, gott gengi þar verður að vera okkar fremsta markmið."
Athugasemdir

