Fotbolti.net
08.03.26 - 07:30
Ívan Guðjón Baldursson

Pep: Besti leikur sem við höfum spilað hér

Pep: Besti leikur sem við höfum spilað hér
Canon

Mynd: EPA

Pep Guardiola gerði tíu breytingar á byrjunarliði Manchester City á milli leikja og mættu varaskeifurnar því til leiks gegn Newcastle United á St. James' Park í enska bikarnum í gærkvöldi.
Newcastle byrjaði vel og náði forystunni en gestirnir frá Manchester jöfnuðu metin og tóku öll völd á vellinum. Þeir voru talsvert sterkari aðilinn í síðari hálfleik og verðskulduðu að standa uppi sem sigurvegarar.

„Þetta er besti leikur sem við höfum spilað á þessum leikvangi síðan ég tók við Manchester City fyrir áratugi síðan," sagði Guardiola að leikslokum. „Við erum að ná stöðugleika í frammistöðurnar okkar og ég er mjög stoltur af því. Þetta er frábær sigur.

„Ég var gagnrýndur fyrir liðsvalið þegar við töpuðum gegn Leverkusen, en í dag unnum við svo það er allt i lagi. Þetta var góð ákvörðun í dag útaf því að við unnum, en þegar við töpum þá er það slæm ákvörðun."


Pep ræddi einnig um John Stones, Savinho, Omar Marmoush og Jérémy Doku. Marmoush skoraði tvennu í 1-3 sigri.

„Ég er mjög ánægður fyrir hans hönd (John Stones), hann er að standa sig vel eftir löng og erfið meiðsli. Hann var fyrirliðinn í dag og átti það skilið.

„Savinho og Jérémy Doku voru frábærir í dag, þvílíkur kantmaður sem Savinho er sérstaklega einn gegn einum. Hann er svo hættulegur. Hann og Doku voru frábærir í spilinu og sköpuðu mikla hættu. Við spiluðum virkilega, virkilega vel á mjög erfiðum velli.

„Ég er ánægður með Omar (Marmoush), seinna markið hans var sérstaklega gott."


Pep gagnrýndi að lokum dómgæsluna í leiknum.

„Það voru sumar dómaraákvarðanir sem ég átti erfitt með að skilja, til dæmis þegar var rifið aftan í Jérémy (Doku). Þetta væri brot alls staðar nema hér."

Enski bikarinn: Varalið City með yfirburði í Newcastle
TENGT EFNI

Enski bikarinn: Varalið City með yfirburði í Newcastle

Pep: Besti leikur sem við höfum spilað hér
Canon

Mynd: EPA

Pep: Besti leikur sem við höfum spilað hér
Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton7+1816
4Chelsea8+213
5Liverpool7+112
6Aston Villa8-311
7Brentford7+510
8Leeds7+310
9Everton8-110
10Ipswich Town8-410
11Hull City7+19
12Tottenham8-29
13Fulham8-28
14Newcastle7-48
15Man Utd707
16Crystal Palace7-87
17Bournemouth7-46
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland7-84
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.