Man Utd hefur áhuga á miðjumanni Bournemouth - Emery gæti yfirgefið Aston Villa - Klopp er ekki í viðræðum við Real Madrid.
   sun 08. mars 2026 10:00
Ívan Guðjón Baldursson
Pep í tveggja leikja bann: Ég vil eiga öll metin!
Mynd: EPA
Pep Guardiola þjálfari Manchester City fékk að líta gula spjaldið fyrir mótmæli í sigri liðsins gegn Newcastle United á St. James' Park í gærkvöldi.

Þetta var sjötta spjaldið sem Guardiola fær á leiktíðinni og er því dæmdur í sjálfkrafa tveggja leikja bann.

Guardiola var ósáttur eftir að hann taldi Kieran Trippier brjóta á Jérémy Doku og fékk gult spjald fyrir að kvarta hástöfum í fjórða dómaranum.

Guardiola fór í eins leiks hliðarlínubann eftir að hann fékk fyrstu þrjú gulu spjöldin, en bannið tvöfaldast við næstu þrjú spjöld. Það þýðir að þjálfarinn sigursæli missir af leik liðsins gegn West Ham United í ensku úrvalsdeildinni næstu helgi og svo leik í 8-liða úrslitum FA bikarsins í byrjun apríl.

Hann verður á hliðarlínunni þegar Man City spilar við Real Madrid í Meistaradeildinni og þegar liðið mætir Arsenal í úrslitaleik deildabikarsins, þar sem leikbannið telur aðeins til leikja í úrvalsdeildinni og FA bikarnum.

„Ég skal segja ykkur það að við eigum öll metin í þessu landi. Við eigum þau öll," sagði Guardiola meðal annars við fréttamenn eftir sigurinn gegn Newcastle í gær og sló á létta strengi.

„Núna eigum við líka metið yfir þjálfarann með flest gul spjöld. Ég vil eiga öll metin! Tveggja leikja bann og ég fæ loksins frí í tvo leiki.

„En í alvöru talað þá eru hlutir sem ég skil ekki ennþá eftir 10 ár í þessari deild. Þetta væri brot í öllum öðrum keppnum nema þessari. Skoðið umrætt atvik aftur, þetta er augljóst brot."

Athugasemdir
banner
banner