NSÍ Runavík tók á móti Víking í fyrstu umferð nýs tímabils í efstu deild færeyska boltans í dag.
Þetta var fyrsti leikur NSÍ undir stjórn Sigurðs Ragnars Eyjólfssonar, fyrrum aðalþjálfara kvennalandsliða Íslands og Kína.
NSÍ vann 1-0 til að hefja tímabilið á sigri og lék Alex Freyr Elísson allan leikinn. Alex Freyr gekk til liðs við NSÍ fyrr á árinu eftir að hafa upprunalega skipt yfir til Njarðvíkur, en hann nýtti sérstakt ákvæði til að enda samning sinn þar og flytja til Færeyja.
Alex Freyr lék með uppeldisfélaginu Fram í Bestu deildinni síðustu tvö ár eftir að hafa einnig reynt fyrir sér með KA og Breiðabliki.
Næsti leikur NSÍ verður þó afar erfiður, gegn ríkjandi meisturum KÍ frá Klaksvík sem hafa unnið færeysku deildina fjórum sinnum á síðustu fimm árum.
Það voru fleiri Íslendingar sem mættu til leiks í leikjum dagsins í Evrópu, þar sem Arnór Sigurðsson var í byrjunarliðinu í 2-1 sigri Malmö gegn Halmstad í sænska bikarnum.
Arnór lék fyrstu 72 mínúturnar í úrslitaleik um toppsæti riðilsins. Malmö endar riðlakeppnina með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir og dettur Halmstad úr leik með sex stig.
Daníel Tristan Guðjohnsen sat allan tímann á bekknum í liði heimamanna.
Að lokum var Hörður Björgvin Magnússon í hjarta varnarinnar hjá Levadiakos sem steinlá á heimavelli gegn Panathinaikos í efstu deild í Grikklandi.
Panathinaikos vann þægilegan sigur til að tryggja sér sæti í efsta hluta deildarinnar fyrir þrískiptingu. Þetta var fjórði sigurinn í röð hjá Panathinaikos en Sverrir Ingi Ingason var ekki með vegna meiðsla.
Levadiakos er sex stigum á eftir Panathinaikos og er hörð barátta framundan hjá Herði og félögum um sæti í Sambandsdeild Evrópu.
Í kvennaboltanum fór einn æfingaleikur fram þegar Bröndby tapaði fyrir Rosenborg.
NSÍ Runavík 1 - 0 Víkingur Göta
Malmö 2 - 1 Halmstad
Levadiakos 1 - 4 Panathinaikos
Bröndby 1 - 2 Rosenborg
Athugasemdir

