Fotbolti.net
08.04.15 - 08:00
Alexander Freyr Tamimi

Fyrirliðinn tekinn við Wigan (Staðfest)

Gary Caldwell er nýr stjóri Wigan.

Gary Caldwell er nýr stjóri Wigan.

Canon

Mynd: Getty Images

Gary Caldwell, fyrirliði Wigan, hefur fengið stöðuhækkun og er nú orðinn knattspynustjóri félagsins.

Caldwell tekur við stjórnartaumunum af Malky Mackay sem var rekinn á mánudagskvöld eftir 2-0 tap gegn Derby. Wigan er nú í 23. sæti Championship deildarinnar, átta stigum frá öruggu sæti þegar einungis fimm leikir eru eftir.

Caldwell, sem lyfti enska bikarnum með Wigan árið 2013 og er 32 ára gamall, er nú tekinn við liðinu og samkvæmt yfirlýsingu félagsins er samningurinn ekki til bráðabirgða.
Caldwell á að baki 55 landsleiki fyrir Skotland og hefur spilað 111 leiki fyrir félagið frá árinu 2010. Hann hefur þó ekkert spilað á þessu tímabili vegna meiðsla á mjöðm.

Hann hefur hins vegar verið að taka þjálfararéttindi undanfarin tímabil og verður hann formlega kynntur sem stjóri Wigan í dag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.