Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 08. apríl 2021 21:20
Aksentije Milisic
Arsenal sagt undirbúa tilboð í Hakimi
Mynd: Getty Images
Arsenal er sagt vera undirbúa stórt tilboð í Achraf Hakimi, hægri bakvörð Inter Milan.

Mikel Arteta, stjóri Arsenal, hefur mikinn áhuga á að kaupa Hakimi en framtíð Hector Bellerin hjá félaginu er sögð óljós.

Inter Milan er búið að setja 43 milljóna punda verðmiða á Hakimi en hann kom til liðsins frá Real Madrid síðasta sumar fyrir 34 milljónir punda.

Hakimi hefur átt mjög gott tímabil fyrir topplið Inter en hann hefur skorað sex mörk og lagt upp önnur sex í 36 leikjum í öllum keppnum.

Fjárhagsstaða Inter er hins vegar ekki góð og gæti félagið því þurft að selja Hakimi. Arsenal ætlar sér að nýta sér það en Chelsea hefur einnig fylgst með Hakimi.

Bellerin hefur verið orðaður burt frá Arsenal en PSG er sagt hafa mikinn áhuga á að fá hann í sumar. Þá hefur hann einnig verið orðaður við Barcelona.


Athugasemdir
banner
banner