Fotbolti.net
11.09.26 - 10:25
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Getur orðið aðalleikarinn og hljómsveitarstjórinn á Laugardalsvelli

Getur orðið aðalleikarinn og hljómsveitarstjórinn á Laugardalsvelli
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mjólkurbikarinn
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Skoðanapistill

[email protected]

Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Í kvöld mætast Breiðablik og Afturelding í bikarúrslitaleik karla. Þar mætast liðið í 4. sæti Bestu deildarinnar og Lengjudeildarmeistararnir.

Anton Logi Lúðvíksson er án vafa einn allra besti leikmaður Breiðabliks. Hann hefur sýnt það á köflum að hann getur tekið yfir leiki og eftirminnileg er frammistaða hans gegn KR fyrr í sumar þar sem hann var yfirburðamaður á Kópavogsvelli.
Anton Logi er á deginum einn allra besti leikmaður Bestu deildarinnar en hann hefur verið nokkuð óheppinn með meiðsli og stundum skort stöðugleika.

Miðjumaðurinn sýndi það í Evrópuleikjum haustið 2023 að stór augnablik náðu lítið til hans og var hann tilbúinn að fara erfiðu leiðina, fá í sig pressu, til þess að opna svæði fyrir liðsfélag sína. Í kjölfarið tók Óskar Hrafn svo Anton með sér til Noregs. Pressan í kvöld er á Breiðabliki og þá er tímapunkturinn fyrir bestu leikmennina að stíga upp.

Hann er búinn að ná sér heilum eftir meiðsli sem voru að hrjá hann og hefur hann byrjað síðustu tvo leiki. Hann er 23 ára og bar fyrirliðabandið í síðasta leik Blika. Ábyrgðin á honum er að aukast.

Hann hefur alla burði til að vera aðalleikarinn og hljómsveitarstjórinn á Laugardalsvelli í kvöld. Hann þekkir hvernig Magnús Már vill spila því hann lék á láni undir hans stjórn árið 2021.

Það er kominn tími til að hann minni aftur á hversu öflugur hann getur verið og hann hefur alla burði til að taka yfir leikinn í kvöld.

Bikarúrslitaleikurinn hefst klukkan 19:00 og er spilaður á Laugardalsvelli
Getur orðið aðalleikarinn og hljómsveitarstjórinn á Laugardalsvelli
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í leik með Aftureldingu.

Í leik með Aftureldingu.

Canon

Mynd: Raggi Óla

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.