Fotbolti.net
11.09.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Skotmark Arsenal fær nýjan samning

Kofane í leik með Leverkusen Arsenal í Meistaradeildinni á síðustu leiktíð

Kofane í leik með Leverkusen Arsenal í Meistaradeildinni á síðustu leiktíð

Canon

Mynd: EPA

Þýska félagið Bayer Leverkusen er að ganga frá nýjum samningi við kamerúnska landsliðsmanninn Christian Kofane en hann skrifar undir til 2031.
Englandsmeistarar Arsenal hafa miklar mætur á hinum tvítuga Kofane, sem er talinn eiga framtíðina fyrir sér í ensku úrvalsdeildinni.

Leverkusen sér fram á að geta selt hann fyrir háa fjárhæð á næstu árum og hefur því ákveðið að semja við hann til fimm ára. Samkvæmt Kicker telur félagið sig geta fengið meira en 100 milljónir evra fyrir hann í framtíðinni.

Kofane kom til Leverkusen frá spænska félaginu Albacete á síðasta ári. Hann kom að sextán mörkum á sínu fyrsta tímabili í Þýskalandi og hefur skorað tvö mörk í fyrstu þremur leikjum nýs tímabils.

Hann þreytti frumraun sína með landsliði Kamerún í desember á síðasta ári og á nú sex landsleiki að baki og tvö mörk.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.