Fotbolti.net
11.09.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

„Galdramaðurinn“ til Brasilíu (Staðfest)

„Galdramaðurinn“ til Brasilíu (Staðfest)
Canon

Mynd: Botafogo

Marokkómaðurinn Hakim Ziyech hefur samið við brasilíska félagið Botafogo til næstu tveggja ára.
Ziyech er 33 ára sóknarsinnaður leikmaður sem hefur verið kallaður „Galdramaðurinn“, en það viðurnefni fékk hann hjá Ajax.

Hann steig þó sín fyrstu skref hjá Heerenveen, þar sem hann lék með Ingólfi Sigurðssyni í yngri flokkunum og síðar Alfreð Finnbogasyni í aðalliðinu. Ingólfur ræddi samkeppnina við Ziyech í viðtali við Sindra Sverrisson hjá Morgunblaðinu árið 2019 og sagði hana hafa verið mikla á yngri árum.

Alfreð hrósaði Ziyech einnig í hástert þegar hann gekk til liðs við Chelsea árið 2020. Þeir náðu vel saman hjá Heerenveen, þar sem Alfreð varð markakóngur tímabilið 2013-2014 með 29 mörk og gaf auk þess tíu stoðsendingar. Ziyech lagði upp níu mörk á sama tímabili.

Frá Heerenveen fór Ziyech til Twente og síðan Ajax, þar sem hann sló í gegn áður en Chelsea keypti hann árið 2020. Hann náði sér ekki á strik hjá Chelsea og yfirgaf félagið þremur árum síðar. Síðan hefur hann leikið með Galatasaray, Al Duhail og nú síðast Wydad í Marokkó.

Nú tekur við nýtt ævintýri í Brasilíu en Ziyech hefur samið við Botafogo til tveggja ára. Hann er spennandi liðsstyrkur fyrir félagið, sem situr í 14. sæti brasilísku A-deildarinnar með 31 stig.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.