Fotbolti.net
11.09.26 - 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Ítalski boltinn

Ítalía um helgina - Tekst Alberti að fylgja eftir draumabyrjuninni?

Albert skoraði sigurmark í fyrsta leik. Hvað gerir hann á morgun?

Albert skoraði sigurmark í fyrsta leik. Hvað gerir hann á morgun?

Canon

Mynd: EPA

Fjórða umferð Seríu A hefst um helgina en fyrsti leikurinn er spilaður í kvöld.
Þórir Jóhann Helgason verður væntanlega í leikmannahópi Venezia gegn Fiorentina. Hann bíður enn eftir sínu fyrsta tækifæri í byrjunarliðinu en eftir þrjú töp í fyrstu þremur deildarleikjunum gæti farið að styttast í það.

Á morgun verða tveir Íslendingar í eldlínunni. Mikael Egill Ellertsson og félagar í Genoa mæta Frosinone klukkan 13:00 en Albert Guðmundsson verður með Lazio gegn AC Milan.

Albert átti draumabyrjun hjá Lazio þegar hann kom inn á sem varamaður og tryggði liðinu 2-1 sigur á Udinese með frábæru skallamarki.

Lazio er með fullt hús stiga líkt og Roma og Inter, sem leika ekki fyrr en á mánudag.

Leikir helgarinnar:

Föstudagur:
18:45 Venezia - Fiorentina

Laugardagur:
13:00 Genoa - Frosinone
16:00 Lazio - Milan
18:45 Atalanta - Cagliari

Sunnudagur:
13:00 Lecce - Monza
16:00 Napoli - Bologna
18:45 Sassuolo - Juventus

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Roma3+99
2Inter3+59
3Lazio3+39
4Como3+47
5Milan3+37
6Juventus3+37
7Frosinone3+36
8Atalanta3+16
9Cagliari3+16
10Udinese304
11Sassuolo304
12Napoli303
13Torino3-13
14Lecce3-33
15Bologna3-21
16Parma3-31
17Monza3-41
18Venezia3-50
19Genoa3-60
20Fiorentina3-80
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.