Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fim 08. apríl 2021 20:05
Aksentije Milisic
Myndband: Rashford kom United yfir á Spáni - „Kroos sending frá Lindelof"
Mynd: Getty Images
Þessa stundina eigast við Granada og Manchester United í Evrópudeildinni en spilað er á Spáni í fyrri leiknum.

Staðan í hálfleik er 0-1 fyrir gestina en Marcus Rashford gerði eina mark fyrri hálfleiksins.

Markið var mjög snyrtilegt og misstu myndatökumennirnir af markinu en þeir voru að sýna endursýningu á því sem gerðist rétt fyrir markið.

Victor Lindelof átti frábæra sendingu inn fyrir vörn Granada og þar tók Marcus Rashford vel á móti knettinum áður en hann renndi honum í netið.

Margir netverjar fóru strax á Twitter og hrósuðu Svíanum fyrir glæsilega sendingu. „Þetta er Toni Kroos og Vinicius Jr aftur á ferðinni," var á meðal tísta.

Þetta flott mark má sjá með því að ýta hérna.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner