Fotbolti.net
08.05.26 - 21:29
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Lengjudeildin: Afturelding og Njarðvík nældu í sína fyrstu sigra

Joacim Holtan

Joacim Holtan

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Tveimur leikjum er lokið í þriðju umferð Lengjudeildarinnar. Leiknir fékk Aftureldingu í heimsókn. Bæði lið fengu færi til að skora í fyrri hálfleik en það var enn markalaust þegar flautað var til loka fyrri hálfleiksins.

Afturelding komst í gír í seinni hálfleik. Boltinn barst til Joacim Holtan sem skoraði og kom Aftureldingu yfir á 72. mínútu.
Róbert Agnar Daðason bætti öðru markinu við eftir sendingu frá Bart Kooistra og Kooistra innsiglaði sigurinn þegar hann vippaði snyrtilega yfir Ólaf Íshólm Ólafsson í marki Leiknis.

Njarðvík fékk Fylki í heimsókn. Fylkismenn urðu manni færri þegar Birkir Eyþórsson fékk sitt annað gula spjald en hann fékk fyrra gula spjaldið aðeins tveimur mínútum áður.

Bragi Karl Bjarkason kom Njarðvíkingum yfir undir lok fyrri hálfleiks eftir laglega sendingu frá Eiði Aroni Sigurbjörnssyni. Sigurjón Már Markússon innsiglaði sigur Njarðvíkinga þegar hann skallaði boltann í netið eftir hornspyrnu frá Arnleifi Hjörleifssyni.

Afturelding og Njarðvík eru komin með fjögur stig eins og Leiknir en Fylkir er með sex stig.

Leiknir R. 0 - 3 Afturelding
0-1 Joacim Emil Godhei Holtan ('72 )
0-2 Róbert Agnar Daðason ('82 )
0-3 Bart Kooistra ('87 )
Lestu um leikinn

Njarðvík 2 - 0 Fylkir
1-0 Bragi Karl Bjarkason ('44 )
2-0 Sigurjón Már Markússon ('68 )
Rautt spjald: Birkir Eyþórsson , Fylkir ('26) Lestu um leikinn
Sigurjón Már

Sigurjón Már

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Afturelding22+3245
2Þróttur R.22+2543
3Fylkir22+1340
4HK22+1238
5Njarðvík22+938
6Leiknir R.22+128
7ÍR22-628
8Grótta22-727
9Vestri22-1327
10Völsungur22-1226
11Grindavík22-1025
12Ægir22-449
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.