La Gazzetta dello Sport segir að Paulo Dybala hafi hafnað Arsenal, Newcastle Dortmund og Atletico Madrid. Umboðsmenn argentínska landsliðsmannsins munu funda með Inter í lok vikunnar.
Dybala er fáanlegur á frjálsri sölu eftir að samningur hans við Juventus rann út
Dybala er fáanlegur á frjálsri sölu eftir að samningur hans við Juventus rann út
Inter er einnig í viðræðum við Empoli um Kristjan Asllani, tvítugan miðjumann sem vakti athygli á liðnu tímabili.
Sóknarmaðurinn Romelu Lukaku hjá Chelsea hefur verið orðaður við endurkomu til Inter en eins og staðan er núna hefur ítalska félagið ekki efni á því að kaupa hann til baka.
Athugasemdir