08.06.26 - 18:20
Ívan Guðjón Baldursson
Undirbúa nýtt tilboð í Elliot Anderson

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Manchester City er að undirbúa nýtt tilboð fyrir miðjumanninn öfluga Elliot Anderson eftir að Nottingham Forest hafnaði opnunartilboði í síðustu viku.
Man City bauð 70 milljónir punda auk árangurstengdra aukagreiðslna en Forest er talið vilja fá að minnsta kosti 105 milljónir punda fyrir Anderson, sem er sama kaupverð og Arsenal borgaði fyrir Declan Rice sumarið 2023.
Manchester United og fleiri félög eru einnig áhugasöm um Anderson, en City leiðir kapphlaupið. Anderson er tilbúinn að ganga í raðir City en ætlar ekki að fara fram á sölu.
Enski landsliðsmaðurinn er aðeins 23 ára gamall og með þrjú ár eftir af samningi.

TENGT EFNI