Milan, Tottenham og Villa hafa áhuga á Summerville - Atletico Madrid horfir til Reijnders - Everton hefur áhuga á Jesus
   fim 04. júní 2026 21:40
Ívan Guðjón Baldursson
Anderson ætlar ekki að fara fram á sölu
Mynd: EPA
Enski landsliðsmaðurinn Elliot Anderson ætlar ekki að fara fram á sölu frá Nottingham Forest þrátt fyrir mikinn áhuga frá Manchester City.

Forest hafnaði himinháu kauptliboði frá Man City á dögunum en heimildarmaður Sky Sports sem er nákominn Anderson segir að leikmaðurinn hafi engan áhuga á að biðja um sölu.

Anderson líður vel í Nottingham og er með þrjú ár eftir af samningi. Hann er opinn fyrir því að skipta um félag eingöngu ef Forest samþykkir kauptilboð í hann, en talið er að Forest muni ekki sætta sig við minna en 100 til 105 milljónir punda.

Anderson er einbeittur að HM þessa dagana þar sem hann mun líklegast mynda afar öfluga miðju í byrjunarliði Englands ásamt stórstjörnunum Declan Rice og Jude Bellingham.

   03.06.2026 21:56
Forest hafnaði risatilboði frá Manchester City

Slapp
banner
banner