Fotbolti.net
08.07.15 - 09:00
Ívan Guðjón Baldursson

Bryan Ruiz til Sporting (Staðfest)

Bryan Ruiz til Sporting (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Portúgalska félagið Sporting CP er búið að klófesta sóknartengiliðinn Bryan Ruiz.

Ruiz verður 30 ára í ágúst og er búinn að skrifa undir þriggja ára samning við Sporting.
Ef Ruiz stendur sig vel og vekur athygli getur Sporting neitað að selja hann þar sem sérstakt samningsákvæði segir til um að Sporting geti hafnað öllum tilboðum í leikmanninn sem nema undir 43 milljónum punda, eða 60 milljónum evra.

Ruiz var keyptur til Fulham fyrir rúmlega 10 milljónir punda eftir góða frammistöðu með FC Twente í hollensku deildinni. Ruiz gerði 12 mörk í 84 deildarleikjum fyrir Fulham sem féll í Championship deildina fyrir ári síðan. Fulham náði svo aðeins 17. sæti Championship deildarinnar á nýliðnu tímabili.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.