Fotbolti.net
08.07.15 - 07:00
Ívan Guðjón Baldursson

Vietto kominn til Atletico fyrir 20 milljónir (Staðfest)

Vietto kominn til Atletico fyrir 20 milljónir (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Atletico Madrid er búið að staðfesta kaupin á Luciano Vietto, 21 árs sóknarmanni sem kemur frá Villarreal.

Vietto gerði 12 mörk í 32 deildarleikjum á síðasta tímabili og er talið gríðarlega mikið efni.
Atletico borgar 20 milljónir evra fyrir sóknarmanninn sem á fjóra landsleiki að baki fyrir U20 ára lið Argentínu þar sem honum tókst að skora tvö mörk.

Stór félög víðsvegar um Evrópu hafa sýnt sóknarmanninum áhuga í sumar og bindur Atletico miklar vonir við leikmanninn eftir að hafa selt Mario Mandzukic til Juventus.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.