08.08.26 - 16:51
Brynjar Ingi Erluson
2. deild: Hádramatísk endurkoma hjá Haukum - Þægilegt hjá Fjölni

Jón Arnar Barðdal skoraði glæsilegt sigurmark fyrir Hauka

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Viktor Andri gerði tvö í sigri Fjölnis

Mynd: Fjölnir

Haukar unnu magnaðan 2-1 endurkomusigur á KFA í 2. deild karla í dag, en spilað var á SÚN-vellinum í Nesskaupstað. Fjölnismenn unnu þá sannfærandi 4-1 sigur á KFG á Extra-vellinum.
Eftir markalausan fyrri hálfleik í Neskaupstað komust heimamenn í KFA yfir þegar fimm mínútur voru liðnar af þeim síðari.
Staðan var enn 1-0 þegar skammt var eftir en þá jafnaði Sigurður Hrannar Þorsteinsson. Ævar Daði Segatta sendi laglegan bolta fyrir frá hægri, Sigurður stakk sér fram fyrir varnarmann og potaði boltanum í netið.
Jón Arnar Barðdal tryggði Haukum síðan sigurinn með algjöru draumamarki í uppbótartíma. Hann lék með boltann á hægri vængnum og lyfti honum af löngu færi yfir Danny El-Hage í marki KFA.
Þetta leit í fyrstu út eins og fyrirgjöf en Jóni Arnari og Haukum var líklega slétt sama. Boltinn söng í netinu og Haukar fögnuðu mögnuðum endurkomusigri.
Haukar tróna á toppnum með 35 stig og eru með sex stiga forskot á næsta lið. KFA er í níunda sæti með 17 stig. Mörkin má síðan sjá hér neðst í fréttinni.
Fjölnir vann á meðan öruggan 4-1 sigur á KFG.
Egill Otti Vilhjálmsson og Bjarni Þór Hafstein skoruðu með mínútu millibili undir lok fyrri hálfleiks. Viktor Andri Hafþórsson bætti síðan við tveimur mörkum á fimm mínútna kafla snemma í þeim síðari.
Djordje Biberdzic klóraði í bakkann fyrir KFG tæpum stundarfjórðungi fyrir leikslok en nær komust gestirnir ekki.
Fjölnir er í fjórða sæti með 25 stig en KFG situr á botninum með 13 stig.
Fjölnir 4 - 1 KFG
1-0 Egill Otti Vilhjálmsson ('38 )
2-0 Bjarni Þór Hafstein ('39 )
3-0 Viktor Andri Hafþórsson ('55 )
4-0 Viktor Andri Hafþórsson ('60 )
4-1 Djordje Biberdzic ('77 )
KFA 1 - 2 Haukar
1-0 Markaskorara vantar ('50 )
1-1 Sigurður Hrannar Þorsteinsson ('89 )
1-2 Jón Arnar Barðdal ('90 )

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Haukar | 22 | +23 | 47 |
| 2 | Selfoss | 22 | +19 | 45 |
| 3 | Kári | 22 | +27 | 42 |
| 4 | Dalvík/Reynir | 22 | 0 | 31 |
| 5 | Víkingur Ó. | 22 | -8 | 31 |
| 6 | Fjölnir | 22 | +3 | 30 |
| 7 | KFA | 22 | +6 | 29 |
| 8 | Kormákur/Hvöt | 22 | +4 | 27 |
| 9 | Magni | 22 | -19 | 25 |
| 10 | Þróttur V. | 22 | -9 | 23 |
| 11 | KFG | 22 | -20 | 22 |
| 12 | Hvíti riddarinn | 22 | -26 | 17 |