08.08.26 - 11:54
Brynjar Ingi Erluson
„Ein erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ævinni“

Bruno Guimaraes

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Bruno Guimaraes

Mynd: EPA
Brasilíski miðjumaðurinn Bruno Guimaraes hefur kvatt Newcastle United og stuðningsmenn félagsins með hjartnæmu bréfi, skömmu eftir að félagaskipti hans til Englandsmeistara Arsenal voru staðfest.

TENGT EFNI
Bruno Guimaraes til Arsenal (Staðfest)
Arsenal staðfesti í dag kaupin á Bruno Guimaraes en félagið greiðir Newcastle 75 milljónir punda fyrir brasilíska landsliðsmanninn.
Guimaraes lék með Newcastle í fjögur ár og bar fyrirliðabandið síðustu tvö tímabilin.
Hann kvaddi félagið og stuðningsmenn þess með opnu bréfi þar sem hann þakkaði fyrir ógleymanlegan tíma í Newcastle.
„Þetta er ein erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ævinni. Þegar ég kom var félagið í erfiðri stöðu og ég er ótrúlega stoltur af því sem við afrekuðum saman.“
„Ég varð ástfanginn af þessum stað og ég meina það. Frá fyrsta degi létu stuðningsmennirnir, liðsfélagar mínir, Eddie, þjálfarateymið og allir hjá félaginu mér og fjölskyldu minni líða eins og við værum heima.“
„Ég vil einnig þakka PIF, Yasir Al-Rumayyan stjórnarformanni og Jamie Reuben fyrir allt sem þeir hafa gert fyrir mig og félagið.“
„Þá vil ég þakka David Hopkinson og Ross Wilson fyrir þá miklu virðingu sem þeir sýndu mér í gegnum allt ferlið. Þeir gerðu allt sem þeir gátu til að halda mér hjá Newcastle og ég er þakklátur fyrir þann tíma sem við áttum saman.“
„Það er mjög erfitt fyrir mig að fara því Newcastle hefur gríðarlega mikla þýðingu fyrir mig. Ég vildi þó upplifa eitthvað nýtt og tel mig tilbúinn í næstu áskorun ásamt fjölskyldu minni.“
„Ég átti mjög góð samtöl við Matthias Jaissle og yfirgef félagið vitandi að það er í góðum höndum.“
„Ég mun aldrei geta þakkað stuðningsmönnunum nægilega, en ég segi þetta af öllu hjarta. Ég verð alltaf stoltur af því að hafa verið hluti af þessari vegferð félagsins. Takk fyrir allt,“ skrifaði Guimaraes.

Thank you Geordies.
— Bruno Guimarães (@brunoog97) August 8, 2026
Just a heartfelt thank you to the fans, Eddie Howe and his staff, all the players, directors, owners and everyone who works at the club for a period filled with happiness and achievements.
It was beautiful to live these nearly five years with you all. ????????… pic.twitter.com/sJjTvyCuWb

Mynd: EPA

Mynd: EPA