Fotbolti.net
07.08.26 - 18:11
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Hrannar Snær í Víking (Staðfest)

Hrannar Snær í Víking (Staðfest)
Canon

Mynd: Víkingur

Hrannar Snær Magnússon er genginn til liðs við Víkings frá norska félaginu Kristiansund. Hann skrifar undir fjögurra og hálfs árs samning.

Hrannar er kantmaður sem getur einnig leikið sem bakvörður. Meiðsli hafa herjað á Víking en félagið var í leit að kantmanni eftir að Óskar Borgþórsson ökklabrotnaði í lok síðasta mánaðar.
Kjartan Kári ekki í Víking - Hrannar Snær á leiðinni og Erlingur í FH
TENGT EFNI

Kjartan Kári ekki í Víking - Hrannar Snær á leiðinni og Erlingur í FH

Hrannar er 24 ára en hann hóf ferilinn hjá KF. Hann hefur einnig spilað með KH, Selfossi og Aftureldingu.

Hrannar skoraði 12 mörk í 26 leikjum með Aftureldingu í Bestu deildinni síðasta sumar og gekk til liðs við Kristiansund í kjölfarið. Hann kom við sögu í níu leikjum hjá norska liðinu.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.