08.08.26 - 13:12
Brynjar Ingi Erluson
Erlingur í FH (Staðfest)

Mynd: FH

Mynd: FH
FH-ingar hafa staðfest komu Erlings Agnarssonar frá Íslandsmeisturum Víkings en hann kemur til félagsins út tímabilið með möguleika á að gera skiptin varanleg í haust.
Erlingur er uppalinn hjá Víkingi og hefur verið mikilvægur hluti af sigursælu liði félagsins undanfarin ár.
Hann hefur þrisvar orðið Íslandsmeistari með Víkingi og fjórum sinnum bikarmeistari.
Erlingur hefur fengið fá tækifæri undanfarnar vikur og í síðasta mánuði fór af stað umræða um að hann gæti yfirgefið félagið. Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, vísaði því þó á bug að Erlingur væri á förum.
Umræðan hélt áfram á dögunum þegar Víkingur og FH ræddu möguleg félagaskipti Kjartans Kára Halldórssonar. Erlingur átti þá að vera hluti af samkomulaginu og halda í Kaplakrikann.
Kjartan Kári fór ekki til Víkings sem fékk þess í stað Hrannar Snæ Magnússon frá Kristiansund. FH tókst engu að síður að landa Erlingi sem leikur með félaginu út tímabilið.
„Erlingur mun klárlega styrkja okkur í þeirri baráttu sem fram undan er. Hann hefur sýnt það síðastliðin ár að hann er toppleikmaður í þessari deild og við erum mjög ánægðir að hann hafi gengið til liðs við okkur út tímabilið með möguleika á því að gera félagaskiptin varanleg í haust,“ sagði Davíð Þór Viðarsson, yfirmaður fótboltamála hjá FH.
Víkingar hafa einnig staðfest skiptin, en það gerir ráð fyrir að hann snúi aftur um áramótin.
„Við hlökkum til að fylgjast með Erling en hann mun svo snúa aftur til Víkings eftir áramót,“ var skrifað í tilkynningu Víkinga.