08.08.26 - 17:28
Alexander Tonini
Davíð Smári: Mér þykir vænt um marga leikmenn í Vestra
Auglýsing

Davíð Smári Lamude þjálfari Njarðvíkur

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Davíð Smári Lamude þjálfari Njarðvíkur

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Gestirnir í Vestra byrjuðu leikinn mjög vel og skoruðu strax á fyrstu mínútu leiks og voru heppnir að vera ekki 0-2 undir á 10. mínútu þegar Breki Þór Hermannsson fékk dauðafæri sem hann nýtti ekki. Njarðvíkingum tókst að minnka muninn rétt fyrir hálfleik og tók svo alfarið yfir leikinn í þeim seinni.
„Við fáum á okkur mark beint í andlitið og kannski eðlilegt að það komi smá skjálfti í liðið. En mér fannst við vinna okkur gríðarlega vel inn í leikinn, sýndum góðan karakter og ótrúlega góðan spilkafla í leiknum lengst af. Alveg verðskuldaður sigur fyrir rest.“

Lestu um leikinn: Njarðvík 3 - 1 Vestri
Davíð Smári var eins og kunnugt er þjálfari Vestra í fyrra, en er hann sáttur með að vinna tvöfalt gegn sínu gamla liði?
„Nei, mér þykir nú vænt um marga leikmenn þarna. Staðreyndin er sú að við eigum að gera allt til þess að gera Njarðvíkurliðið betra. Það eru einverjir andstæðingar á móti okkur og í dag voru það Vestri og það breytir engu þó að ég hafi þjálfað lið Vestra í fyrra. Þannig horfi ég á þetta."
Svo virðist sem Njarðvík er að spila sinn besta fótbolta á góðum tíma þegar lítið er eftir af tímabilinu. Liðið hefur unnið fimm af síðustu sex leikjum sínum.
Er liðið að spila sinn besta fótbolta núna?
„Já klárlega, við höfum bætt okkur gríðarlega eftir að hafa orðið fyrir gríðarlegum áföllum í sumar. Mér finnst við hafa unnið vel úr þeim og eins og ég sagði áðan þá erum við að reyna að bæta liðið og mér finnst við hafa gert það."
„Við þurfum að toppa líka í næstu leikjum það er klárt."