07.08.26 - 22:53
Andri Stefánsson
Heimir svekktur: Hann gerði grín að okkur
Auglýsing

Heimir Guðjónsson, þjálfari Fylkis

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Heimir Guðjónsson, þjálfari Fylkis

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fótbolti.net ræddi við Heimi Guðjónsson eftir þungt 3-0 tap gegn Leikni í Lengjudeildinni í kvöld.
„Það eru vonbrigði að tapa í dag. Mér fannst þeir einfaldlega betri en við. Ég er svekktur með ákvarðanatöku okkar á boltanum. Það var of lítil hreyfing og menn héldu boltanum allt of lengi. Varnarlega hjálpuðum við heldur ekki hver öðrum nægilega vel. Svo var Axel náttúrulega frábær og gerði nánast grín að okkur, sorglegt að við gerðum ekki neitt í því.“
Hann var spurður út í leikplanið.
„Leikplanið var að byrja af krafti, pressa hátt og reyna að koma sterkir inn í leikinn. Mér fannst við gera það fyrstu sjö til tíu mínúturnar en eftir það fór þetta bara niður á við. Eins og ég sagði áðan voru þeir einfaldlega betri en við í dag.“
Heimir var þá spurður hvað hefði helst vantað upp á hjá hans liði.
„Varnarlega vorum við ekki nógu þéttir og pressan var ekki nógu góð. Sóknarlega héldu menn boltanum of lengi, það vantaði meiri hreyfingu og það eru hlutir sem við þurfum að laga. Við þurfum að fara yfir þennan leik, læra af honum og koma sterkari til baka.“
Að lokum var Heimir spurður út í stórleikinn gegn Aftureldingu í næstu umferð.
„Það leggst vel í mig. Afturelding er alltaf með hörkulið og hefur spilað vel í sumar. Við þurfum að vanda vel til verka.“