Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 08. september 2020 12:00
Magnús Már Einarsson
Higuain sagður vera að semja við félag Beckham
Mynd: Getty Images
Argentínski framherjinn Gonzalo Higuain er að öllum líkindum að ganga til liðs við Inter Miami í Bandaríkjunum.

Hinn 32 ára gamli Higuain er ekki inn í áætlunum hjá Andrea Pirlo, nýráðnum þjálfara Juventus.

NIcolas, bróðir og umboðsmaður Gonzalo, er mættur til Ítalíu til að semja um starfslok við félagið.

Fundarhöld verða í dag um það hversu mikið Higuain fær af þeim 6,3 milljónum punda sem hann á eftir að fá samkvæmt samningi hans.

Eftir það mun Higuain semja við Inter Miami sem er nýtt félag í eigu David Beckham.
Athugasemdir
banner
banner