24.10.26 - 17:06
Fótbolti.net
Haraldur Freyr: Stefan er með tilboð á borðinu frá okkur
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Keflavík gerði 4-4 jafntefli gegn ÍA í lokaumferð Bestu deildar karla í dag. Haraldur Freyr Guðmundsson þjálfari Keflavíkur ræddi við Fótbolta.net eftir leikinn í Akraneshöllinni.

TENGT EFNI
Stjarnan og FH meðal félaga sem vilja Stefan Ljubicic
„Hörkuleikur, mikil skemmtun, mikið af mörkum og leikurinn svona svolítið fram og til baka. Bar þess kannski merki að það væri lítið undir þannig séð," segir Haraldur.
Hvernig metur hann tímabilið?
„Ef við gerum þetta upp svona strax eftir leik þá er okkur spáð falli alls staðar í öllum miðlum út um allt og endum í sjötta sæti í efri hlutanum og þannig að það er bara hrikalega vel gert hjá okkur. Við mættum til leiks til þess að reyna að halda okkur í deildinni og það tókst og gott betur en það."
Verður Stefan Ljubicic áfram?
„Stefan er með hérna tilboð á borðinu frá okkur og er svo bara að skoða sín mál, vonandi heldur hann áfram hjá okkur.
Býstu við því að hann verði áfram?
„Já, ég býst við því."