Fotbolti.net
24.10.26 - 17:01
Brynjar Ingi Erluson

Benoný Breki lagði upp jöfnunarmarkið

Benoný lagði upp jöfnunarmark Stockport

Benoný lagði upp jöfnunarmark Stockport

Canon

Mynd: Stockport County

Benoný Breki Andrésson nýtti tækifærið vel þegar hann kom inn af bekknum í 1-1 jafntefli Stockport County gegn Notts County í ensku C-deildinni í dag.
Framherjinn hafði misst af nokkrum leikjum vegna verkefna með U21 árs landsliðinu og síðan setið á bekknum í síðustu þremur leikjum án þess að koma við sögu.

Hann fékk hins vegar tækifærið í dag þegar Stockport var 1-0 undir og lét til sín taka. Um fimmtán mínútum eftir að hann kom inn á lagði hann upp jöfnunarmarkið fyrir Adam Sidibeh.

Þetta var önnur stoðsending Benonýs í deildinni á tímabilinu og stigið kom Stockport upp í annað sæti með 23 stig.

Adam Ingi Benediktsson var á sínum stað í marki AB sem marði 1-0 sigur á Kolding í dönsku B-deildinni. Þetta var í fjórða sinn á tímabilinu sem Adam Ingi heldur hreinu, en AB er í fjórða sæti með 18 stig eftir tólf umferðir.

Sindri Kristinn Ólafsson stóð þá á milli stanganna hjá Vasalund sem tapaði 2-0 fyrir Sollentuna í norðurriðli sænsku C-deildarinnar.

Vasalund er í erfiðri stöðu í fallbaráttunni og situr í þrettánda sæti með 28 stig, en það sæti þýðir að liðið þarf í umspil til að halda sæti sínu í deildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.