Fotbolti.net
24.10.26 - 17:00
Andri Stefánsson

Fannar sáttur eftir fyrsta markið: Þetta er draumur

Auglýsing
Fannar Heimisson.

Fannar Heimisson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KR tók á móti Breiðabliki í síðustu umferð Bestu deildar karla. Leikar enduðu með 8-3 sigri KR og Fótbolti.net ræddi við Fannar Heimisson sem skoraði sitt fyrsta mark.
Lestu um leikinn: KR 8 - 3 Breiðablik
Það hlýtur að vera geggjuð tilfinning að skora fyrsta markið í meistaraflokki?

„Bara geggjað. Fyrsta markið, þetta er bara draumur.“

Það er ekki oft sem maður sér ellefu marka leik. Hvernig er að spila svona leik?

„Þetta er svakalegt. Þetta er bara það skemmtilegasta sem maður gerir.“

Þú ferð svo til Nordsjælland næsta sumar. Hvernig leggst það í þig?

„Bara frábærlega, mjög spennandi.“

Stefnirðu á að byrja næsta tímabil með KR?

„Já, ég tek fyrstu þrjá mánuðina hér og svo fer ég út frá og með júlí.“

Þið endið tímabilið í öðru sæti. Hvernig meturðu tímabilið í heild sinni?

„Bara geggjað. Ég meina, við vorum í fallbaráttu í fyrra og núna erum við hér. Þetta er bara frábært og meira á eftir að koma. Ég er virkilega sáttur með að enda þetta á svona góðum nótum. Bara mjög geggjað.“
Fannar sáttur eftir fyrsta markið: Þetta er draumur
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Besta karla - Efri hluti

#LiðLmunStig
1Víkingur R.26+5163
2KR26+3053
3Fram26+946
4ÍA27-138
5Breiðablik26+236
6Keflavík27-1130
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.