Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   þri 08. október 2019 21:30
Brynjar Ingi Erluson
Henderson kallaður inn í enska landsliðið
Dean Henderson
Dean Henderson
Mynd: Getty Images
Dean Henderson, markvörður Sheffield United á Englandi, hefur verið kallaður inn í enska landsliðið vegna meiðsla Tom Heaton.

Heaton, sem er 33 ára gamall, meiddist í 5-1 sigri Aston Villa á Norwich um helgina og verður því ekki með í landsleikjatörninni.

Gareth Soutgate, þjálfari landsliðsins, hefur því ákveðið að kalla Henderson inn í hópinn.

Henderson er 22 ára gamall og er á láni frá Manchester United en hann á 10 landsleiki fyrir U21 árs landsliðið.

Hann mun nú hitta hópinn og berjast um stöðu við þá Nick Pope og Jordan Pickford.
Athugasemdir
banner
banner
banner