Fotbolti.net
08.10.26 - 14:56
Elvar Geir Magnússon

JJ Gabriel með samningstilboð frá Man Utd en mun segja nei

JJ Gabriel.

JJ Gabriel.

Canon

Mynd: Instagram/jjnr10

Manchester United hefur boðið JJ Gabriel samningstilboð en það er þó enn talið að United muni missa ungstirnið sem varð 16 ára í þessari viku.

Í síðasta mánuði var greint frá því að Gabriel, sem var ein allra helsta vonarstjarna United, vildi fara frá félaginu. Mörg af stórliðum Evrópu vilja fá hann í sínar raðir.
Ungstirnið hefur ekki ákveðið sig
TENGT EFNI

Ungstirnið hefur ekki ákveðið sig

Hann hefur verið hjá Manchester United síðan hann var ellefu ára og hefur raðað inn mörkum í öllum litum regnbogans fyrir unglingalið Manchester United

Samkvæmt reglum ensku úrvalsdeildarinnar var honum heimilt að skrifa undir forsamning eftir 16 ára afmæli sitt en umboðsmenn hans voru ekki tilbúnir í viðræður eftir ágreining um mínútur í aðalliðinu.

Næsta skref hans er enn óákveðið en Real Madrid er þó líklegast til að semja við hann. Barcelona, ??Bayern München og Paris Saint-Germain sýna öll áhuga.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.