22.11.26 - 21:39
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Pio Esposito fór á kostum í ótrúlegum leik

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Atalanta 4 - 4 Inter
0-1 Pio Esposito ('16 )
0-2 Pio Esposito ('32 )
1-2 Eljif Elmas ('35 )
1-3 Pio Esposito ('52 )
2-3 Charles De Ketelaere ('72 )
2-4 Petar Sucic ('75 , víti)
3-4 Charles De Ketelaere ('80 )
4-4 Franck Kessie ('91, víti)
0-1 Pio Esposito ('16 )
0-2 Pio Esposito ('32 )
1-2 Eljif Elmas ('35 )
1-3 Pio Esposito ('52 )
2-3 Charles De Ketelaere ('72 )
2-4 Petar Sucic ('75 , víti)
3-4 Charles De Ketelaere ('80 )
4-4 Franck Kessie ('91, víti)
Atalanta tók á móti Ítalíumeisturum Inter í kvöldleiknum í Serie A deildinni og úr varð rosaleg skemmtun.
Francesco Pio Esposito fór á kostum og skoraði þrennu en heimamenn í liði Atalanta gáfust aldrei upp.
Eljif Elmas minnkaði muninn í fyrri hálfleik og gerði Charles De Ketelaere slíkt hið sama í síðari hálfleik en alltaf náðu gestirnir frá Mílanó að tvöfalda forystuna í þessum nágrannaslag.
Petar Sucic skoraði af vítapunktinum og minnkaði De Ketelaere aftur muninn niður í eitt mark á 80. mínútu.
Josef Martínez átti nokkrar frábærar vörslur á lokakaflanum til að koma í veg fyrir jöfnunarmark Atalanta sem sýndi mikla orku í síðari hálfleik og fékk dæmda vítaspyrnu á 90. mínútu þegar boltinn fór í hendina á Alessandro Bastoni af mjög stuttu færi.
Miðjumaðurinn reynslumikli Franck Kessié steig á vítapunktinn og skoraði af miklu öryggi til að jafna metin.
Lokatölur urðu því 4-4 og mistókst Inter að endurheimta annað sæti deildarinnar. Liðið er þess í stað áfram í þriðja sæti, með 29 stig eftir 12 umferðir - þremur stigum á eftir toppliði Lazio.
Atalanta er áfram í neðri hlutanum með 15 stig.