Guðmundur Friðriksson er búinn að framlengja samning sinn við Þrótt R. og gildir hann út tímabilið 2021.
Guðmundur er uppalinn hjá Breiðabliki og var fyrst lánaður til Þróttar sumarið 2016. Hann stóð sig vel, fékk tækifæri hjá Blikum í efstu deild en skipti endanlega yfir til Þróttar í fyrra.
Hann hefur varla misst af leik frá komu sinni í Laugardalinn og var meðal bestu bakvarða Inkasso-deildarinnar í sumar.
Guðmundur er 25 ára og á tíu leiki að baki fyrir yngri landslið Íslands.
Guðmundur Friðriksson og Þróttur hafa framlengt samning aðila á milli til næstu tveggja tímabila eða til loka keppnistímabilsins 2021. Það er mikið fagnaðarefni fyrir Þrótt að Guðmundur hafi framlengt og tilhlökkun fyrir komandi baráttu í Inkasso deildinni á næsta tímabili. #Lifi pic.twitter.com/QoHBKUM5Bm
— Þróttur (@throtturrvk) November 8, 2019
Athugasemdir